09.01.2012 22:50
Fegurð í byrjun árs
Um leið og við sendum okkar bestu óskir um gleðilegt ár og þakklæti fyrir hið liðna setti ég inn nýjar myndir sem sýna umhverfið okkar og aðeins frá daglegu stússi í byrjun árs:) http://varmilaekur2.123.is/pictures/

Skrifað af Magnea
26.12.2011 22:02
Á aðventu 2011
Jólamarkaðurinn 10. desember heppnaðist mjög
vel að okkar mati, mörg hundruð gestir,sóttu okkur heim og virðist sem
fjölgi ár hvert. Margir hafa tjáð sig við okkur um að þetta sé alveg
nauðsynlegur viðburður á aðventu. Gleður það okkur og meðan gestir og
sölufólk er ánægt með okkar framtak þá höldum við áfram, jú allt er
þetta ánægjunnar vegna.
Hér má sjá salinn sem er að verða tilbúinn fyrir markaðinn. Myndir af jólamarkaði og undirbúningi má sjá í myndaalbúmi. http://varmilaekur2.123.is/album/default.aspx?aid=218921

Hér má sjá salinn sem er að verða tilbúinn fyrir markaðinn. Myndir af jólamarkaði og undirbúningi má sjá í myndaalbúmi. http://varmilaekur2.123.is/album/default.aspx?aid=218921
Skrifað af Magnea
07.12.2011 23:40
Ótitlað
Lifandi Jólamarkaður í Hrímnishöllinni laugardaginn 10. desember frá kl:13:00-18:00
Nú þegar hafa verið skráðir þeir sem ætla að vera með söluborð og víst er að margt spennandi verður í boði sem getur komið sér vel í jólapakkan já eða bara til að eignast:) Svo eitthvað sé nefnt er það handverk úr Skagafirði og Húnavatnssýslu. Nokkur félög verða á staðnum með fjáröflun sína eins og Kvennalið Tindastóls með pappír og einhver sætindi. Lionsmenn með eðal síld og Kveðfélagið í Lýtó með rjúkandi vöfflur og súkkulaði. Svo verður 10. bekkur Varmahlíðarskóla með kökubasar.Dýrin verða í hesthúsinu fyrir þá sem langar að skoða þau, hestar, hænur, hvolpar, kálfar, og hvaðeina, nú svo vonum við að hún Selma Dís hallarkisan okkar feli sig ekki eins og í fyrra. Skógræktarfélag skagfirðinga gaf okkur Jólatré og færum við þeim bestu þakkir fyrir og minnum á að þann 17. desember getur fólk farið í Hóla og Varmahlíð milli kl:12:00 og 15:00 og náð sér í daruma jólaréð. Jólasveinar ætla að heimsækja okkur og óskaði móðir þeirra eftir að fá að kíkja við hjá okkur, hún vill hafa eftirlit með strákunum í þessari bæjarferð. Enginn þarf að óttast hana, þetta er hin vænsta kerling:) Lukkuleikurinn verður á sínum stað.
Andlegt og veraldlegt fóður, söngur glens og gaman. Við fáum flott tónlistaratriði um miðjan daginn:) Höllin er að færast í jólabúninginn og er tilhlökkun hér á bæ.
Verið velkomin, Björn og Magnea.

Þetta er hún Selma Dís, hún er frekar dugleg við að hrista niðu jólaskrautið hjá mér. Hún tekur fullan þá í undirbúningi, í dag elti hún mig og tuskuna um allt og þegar ég dúkaði borðin var hún farin að ganga aðeins og langt:)
Skrifað af Magnea
26.11.2011 21:46
Síðustu dagar nóvember:)
Síðast þegar ég ritaði nokkrar línur voru að byrja frumtamnigar en nú er þeim lokið og var það um miðjan mánuðinn. Bjössi og Sigurjón tömdu og þjálfuðu stíft í 6 vikur með alveg frábærum árangri.

18 hross voru í frumtamnigu og þjálfun frá aldrinum þriggja til 7 vetra, auk þeirra voru vinnuhestarnir Varmi og Drengur sem eru allveg ómissandi við þessar aðstæður.

Dálítið sérstök þessi mynd, lék mér aðeins með hana. Hér eru þeir á systkinum, Stjörnu Bassa og Nótt frá Varmalæk. Þau eru bæði afkvæmi Tilveru frá Varmalæk, Nótt er Smáradóttir en Stjörnu Bassi Kjarnasonur frá Varmalæk sem er Smárasonur einnig. Þriðja afkvæmi Tilveru var í frumtamnigu, dóttir Hófs frá Varmalæk, lofar hún góðu.

Þetta er svo gullið okkar hún Hetja frá Varmalæk, þriggja vetra, Tindsdóttir, hún stóð undir væntingum og verður bara spennandi hjá Bjössa í vetur en þegar hefur verið ákveðið hvaða hross verða á húsi.

Haustið var frábært, veðrið lék við okkur en nú er vetur konungu mættur og allt í besta lagi, jólin nálgast, hesthúsið tómt í bili og við hreinsum og pússum fyrir jólamarkaðinn sem á að vera í Hrímnishollinni 10 desember.
Læt þetta gott í bili með kveðju frá Varmalæk
Magnea

11.10.2011 20:46
Fyrstu daga október
Frumtamningar hófust hjá okkur 3. október þessa mánaðar og fara vel af
stað, tamningamaður með Bjössa núna við þennan kafla er hann Sigurjón
Björnsson. Að okkar mati er mikið af spennandi og góðum trippum á húsi
sem að við bindum vonir við. Eftir vikuna er kominn hnakkur á öll
trippin og gengur ljómadi vel með þau.
Já það er engin lognmolla í gangi, hér tekur Björn lagið með slíkum tilþrifum að tamningamaðurinn situr þögull, já það er nauðsynlegt að hafa gaman af þessu öllu saman;)

É mun setja inn myndir af tamningum fljótlega og færa ykkur frekari fréttir með bestu kveðjum frá Varmalælk.

01.10.2011 11:47
Ljósmyndir frá í vor og sumar

Í gær 30. september voru settar inn nokkrar myndir frá í vor og sumar. Myndirnar eru af folaldsmerum, frá kynbótasýningum og af markaðsdögum sem að við héldum í ágúst, svo eitthvað sé nefnt.
Kíkið endilega í myndaalbúmin ef þið hafði áhuga;) http://varmilaekur2.123.is/pictures/
Skrifað af Magnea
20.09.2011 21:44
Ótitlað
Heilir og ælir gestir góðir! Eins og oft áður tifar tíminn áfram og ég ekki nógu dugleg að færa ykkur fréttir af okkur. Fréttin hér á undan er síðan við auglýstum markaðsdagana í ágúst.
Þeir voru hreint út sagt alveg frábærir og ekki síst gagnlegir og fjöldi manns sótti okkur heim. Síðan þá höfum við selt nokkur hross og hæst ánægð með það. Síðan þá erum við líka búin að fara tvær skemmtilegar hestaferðir, smala heimalöndin og hvaðeina með haustverkunum. Famundan eru svo frumtamnigar strax eftir mánaðarmótin. Laufskálréttarhelgin er framundan og þar sem að svo mikið var um að vera hjá okkur í ágúst þá ákváðum við að vera ekki með neinn viðburð hér á Varmalæk og taka þátt í skemmtileg heitum sem verða um allan fjörð næstu daga.
Myndin hér að neðan er tekin á markaðsdögum í ágúst, þeir tóku lagið:)

Þetta eru þeir Björn bóndi og synir hans Einar Bjarni, Gunnar Sigfús og Höskuldur Sveinn ásamt Gísla bónda í Álftagerði. Ekki verður þetta lengra að sinni sem myndir af hinum ýmsu viðburðum síðsumars og í haust verða sett inn bráðlega:)Þeir voru hreint út sagt alveg frábærir og ekki síst gagnlegir og fjöldi manns sótti okkur heim. Síðan þá höfum við selt nokkur hross og hæst ánægð með það. Síðan þá erum við líka búin að fara tvær skemmtilegar hestaferðir, smala heimalöndin og hvaðeina með haustverkunum. Famundan eru svo frumtamnigar strax eftir mánaðarmótin. Laufskálréttarhelgin er framundan og þar sem að svo mikið var um að vera hjá okkur í ágúst þá ákváðum við að vera ekki með neinn viðburð hér á Varmalæk og taka þátt í skemmtileg heitum sem verða um allan fjörð næstu daga.
Myndin hér að neðan er tekin á markaðsdögum í ágúst, þeir tóku lagið:)
MKG.
Skrifað af Magnea
14.08.2011 11:39
Hrossamarkaður í Hrímnishöllinni
Á myndinni eru Meistari og Kærleikur. Meistari er brúnn 2. vetra, móðir hans er Alþýða frá Varmalæk og faðir hans er Tindur frá Varmalæk. Meistari fæddist daginn sem Tindur hlaut heimsmeistaratitilinn og var því nafnið við hæfi á hann. Hinn heitir Kærleikur, 3. vetra. Móðir hans er Tindra frá Varmalæk (systir Tinds) og faðirinn er Kristall frá Varmalæk. Spennandi folar!

Dagana 20. og 21. ágúst verður hrossamarkaður í Hrímnishöllinni á Varmalæk frá kl: 16:00 til kl: 20:00 laugardainn 20. og á sunnudag frá kl: 13:00 til kl: 18:00.
Nú á að minnka lagerinn fyrir veturinn og verður boðið upp á gæðinga og gæðingsefni frá ungum og ótömdum upp í full mótuð. Í boði verða efni í kynbóta og keppnis hross. Reiðhross, sýndar hryssur og ungir kynbótagripir svo eitthvað sé nefnt. Öll verða hrossin úr ræktun Björns á Varmalæk eða út af ræktun hans. Sjón er sögu ríkari. Nú er um að gera að líta við og prútta við karlinn já og eða taka lagið með honum, en það er hans mesta skemmtun og tók hann sérstaklega fram við undirritaða við undirbúninginn að hann æltaði sér að syngja ;-)
Ár hvert höfum við verið með opið hús og einnig sölusýningar en nú ákváðum við að breyta til og halda markaðsdaga. Nánar um markaðinn síðar.

12.08.2011 01:30
Landsmótsvikan í myndum

Setti inn myndir frá Landsmótsvikunni. Þessar myndir eru teknar af og til alla vikuna, ýmist hér heima eða á Landsmótinu. Sjá má svipmyndir af fólki, af knöpum þjálfa, sýna, keppa og slappa af:) Setningarathöfn og verðlaunaafhendingar og fl. Sjá í myndasafni.
10.08.2011 20:18
Kyrrð í fjallasal

Það var kyrrt og fallegt um að lítast á sunnudaginn 7. ágúst þegar undirrituð fór í gönguferð á meðan bóndinn hélt töðunni á lofti, þurkurinn var mikill og hitinn hátt í 20 stig og lognið algert svo lá við að heyrðist í hagamús rölta um hagann . Það eru forréttindi að hafa stóðið í heimalöndum og geta fylgst með því hvenær sem vill. Á ferð minni hitti ég nokkur hross. Fór í fjallið og í hólfið hjá honum Kunningja. Í nýju myndaalbúmi sem heitir á fallegum degi má sjá myndir frá röltinu.
________________________ps. er svolítið leið yfir truflunum sem eru við uppsetningu á síðunni, myndir sem ég set með blogginu sjást ekki alltaf og ýmislegt annað smá vesen.Held að þetta stafi af kerfisbreytingum hjá 123.is og vona ég að þetta lagist fljótt allt saman...
Skrifað af Magnea
02.08.2011 20:54
Vá hvað tíminn...og Landsmót löngu búið.
Vá hvað það er langt síðan ég hef sett inn línu hér, verð að gera eitthvað í þessu. Síðast þegar ég skrifa er Landsmót að hefjast:) Þegar nóttin er björt og nóg gera er ég ekki dugleg að skrifa. Já sumarið hefur verið annasamt og mjög skemmtilegt. Langar mig að þessu sinni að fjalla aðeins um Landsmótið og umfjöllun um það.
Landsmót hestamanna var frábært, held að flestir séu sammála um það. Aldrei verið betri hross og allt gekk vel utan eins viðburðar. Fyrsti dagur mótsins var hlýr og notalegur en svo kólnaði svo að um munaði og vorum við heimamennirnir sem hælum veðurblíðu sem einkennir Vindheimamelana litin hvössum augum og þótti sumum ástæða til að hafa ýmis orð um mótsstaðinn við okkur. Við gátum lítið annað en verið vongóð. Brast á með blíðu þegar kominn var fimmtudagur og hélst til lokadags og ókum við heim á sunnnudeginum í 19 stiga hita og sól og golu. Ég las í einhverjum fjölmiðli að sá dagur hefði sloppið til...
Í skugga ósamstöðu um hvar Landsmótin skulu haldin er umræðan aðeins lituð að mínu mati. Lesa má fyrirsagnir eins og Lítið landsmót og Landsmót hinna hörðu valla svo eitthvað sé nefnt. Komið hefur farm að á sjöunda þúsund hafi mætt en 12-14 þúsund á Hellu. Held að óhætt sé að segja að 7-9000 manns hafi verið á Vindheimamelum þegar mest var. Margar og mjög eðlilegar ástæður réðu til um fjölda gesta og er öllum þær ljósar.
Stórmenni í hestamennsku létu hafa eftir sér að þeir ætluðu ekki að mæta á þetta mót og voru margir sem fetuðu í fótspor þeirra. Kalt veður og veðurspá og mikið var rætt um verðlagið. Varðandi aðgöngumiða á landsmót hef ég þá skoðun að knaparnir og starfslið eigi ekki að þurfa að greiða aðgangseyri, þessu þarf að breyta. Verðlag veitinga á svæðinu óþolandi... Skiptar skoðanir eru á verði miða, en miðað við uppbyggingu, umfang og umgjörð alla er að mínu mati er miðinn ekki of dýr. Svo er þetta spurning um hvernig Landsmót viljum við halda??? margar skoðanir á því og allt í besta lagið með það.
Allur undirbúningur og skipilag á svæðinu allan tímann var til fyrirmyndar. Þarf eiginlega ekki að tíunda það, þeir sem voru þarna vita það. Síðan ég fór að fara á Landsmót hefur mér þótt umhirða og skipulag á Vindheimmamelum alveg frábært. Þó eitthvað hafi verið um hrós þá er verið að agnúast óþarflega mikið. Veðurgiðirnir hafa áður verið ónotalegir við gesti hestamannamóta:) Það rignir til dæmis mikið á HM í Austurríki.
Þegar upp er staðið hefði mátt segja eins og ávalt hefur verið sagt - ENN TOPPA SKAGFIRÐINGAR!
Magnea
Eh. er kerfirð að trufla mig og get ég ekki sett inn myndir en það lagast vonandi fljótt þá verða settar inn myndir.
Velkomin aftur
Skrifað af Magnea